Staðreyndir um húsið
- Henning Larsen Tegnestue og Batteríið arkitektar teiknuðu húsið.
- Ólafur Elíasson listamaður hannar glerhjúpinn sem umlykur húsið.
- ÍAV eru al-verktakar hússins.
- Artec eru hljóðhönnuðir hússins.
- Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verður heimili Íslensku Óperunnar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
- Aðalsalur Tónlistar- og ráðstefnuhússins tekur 1.800 manns í sæti.
- Fyrsta flokks aðstaða verður fyrir allt tónlistarlíf á Íslandi.
- Mikil sveigjanleiki til að taka við stórum og smáum viðburðum án þess að þeir rekist á hvern annan.
- Möguleiki á að hýsa ráðstefnur, fundi og aðra viðburði af mismunandi stærðum.
- Mjög rúmgott sýningarsvæði.
- Búnaður og tækni af bestu gæðum.
- Unnið er að undirbúningi fyrir 300-400 herbergja hótels við hlið Tónlistar- og ráðstefnuhússins. Innangengt verður á milli bygginganna.
- Veitingaþjónusta, veitingastaðir, kaffihús og barir.
- Færanlegir barir sem hægt er að setja upp víða í húsinu.
- Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verður 28.000 fermetrar að stærð.
- Bygginarlóðin er alls 6 hektarar (60.000 fermetrar).
- Heildarbyggingarmagn er 100.000 m² ofanjarðar og 90.000 m² neðanjarðar
- Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verður 43 metrar á hæð frá götu (Hallgrímskirkjuturn er 76 metrar).
- Botnplata hússins er um 8.000 fermetrar.
- Í bygginguna alla fara um 30.000 rúmmetrar af steypu.
- Utan um grunn Tónlistar- og ráðstefnuhússins eru alls 500 metra löng stálþil.
- Um 2.500 tonn af burðarstáli fara í byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins og 4.000 af bendistáli.
- Úr grunni hússins var mokað í burtu á annað hundrað þúsund rúmmetrum af jarðvegi.
- Á meðan á framkvæmdum við grunn hússins stóð var dælt upp úr honum sex milljónum tonna af sjó.
Harpa er hið nýja kennileiti Íslands
