Saga hússins
- Talið er að árið 1881 hafi birst fyrsta áskorunin um byggingu tónlistarhúss í blaðinu Þjóðólfi.
- Í kjölfarið litu ýmsar menningarstofnanir dagsins ljós eins og Þjóðleikhúsið og Sinfóníuhljómsveit Íslands.
- Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt sína fyrstu tónleika árið 1950 í troðfullum sal í Austurbæjarbíói.
- Samtök um tónlisarhús voru stofnuð árið 1983.
- Á árunum eftir 1990 komst verkefnið á skrið með aðkomu íslenska ríkisins og Reykjavíkurborgar.
- Árið 1996 skipaði menntamálaráðherra nefnd um málið.
- Árið 1997 komu fram þrjár hugmyndir um staðsetningu hússins og hugmyndin um að sameina í einni byggingu tónlistar- og ráðstefnuhús var lögð fram.
- Árið 1999 tilkynntu borgarstjóri Reykjavíkur og ríkisstjórnin áætlun um að byggja tónlistar- og ráðstefnuhús í miðborg Reykjavíkur.
- Árið 2000 var húsinu valinn staður þar sem Austurbugt og Ingólfsgarður mætast.
- Árið 2001 var haldin hugmyndasamkeppni um skipulag Austurhafnarinnar
- Í byrjun árs 2002 voru niðurstöður samkeppninnar kynntar. Yfir 40 tillögur bárust.
- Síðla árs 2002 undirrituðu íslenska ríkið og Reykjavíkurborg samkomulag um verkefnið.
- Árið 2003 var fyrirtækið Austurhöfn-TR stofnað til að hafa umsjón með verkefninu.
- Austurhöfn efndi fljótlega til hugmyndasamkeppni um hönnun, teikningu nýs tónlistar- og ráðstefnuhúss sem og heildarskipulag fyrir svæðið umhverfis og áætlun um að fjármagna og reka húsið ásamt nærliggjandi hóteli.
- Árið 2004 var efnt til samningskaupaferils innan ramma svokallaðrar einkaframkvæmdar (PPP – Public Private Partnership). Fjögur félög lögðu fram tilboð. Þar á meðal var Eignarhaldsfélagið Portus.
- Síðla árs 2005 komst matsnefnd Austurhafnar-TR að þeirri niðurstöðu að Eignarhaldsfélagið Portus væri með vænlegasta tilboðið í hönnun, byggingu og rekstur tónlistar- og ráðstefnuhúss.
- 9. mars 2006 var undirritaður samningur á milli íslenska ríkisins, Reykjavíkurborgar og Eignarhaldsfélagsins Portus vegna byggingar tónlistar- og ráðstefnuhúss.
- 12. janúar 2007 hófust framkvæmdir.
- Vorið 2011 verður Harpa tónlistar- og ráðstefnuhúsið opnað eftir langan aðdraganda.
Eftir aldarlanga bið rætist loksins draumurinn um íslenskt tónlistarhús með tilkomu Hörpu.