Henning Larsen
HLA mótar, gagnrýnir og breytir efnislegu umhverfi, frá svæðisskipulagi til byggingarhönnunar og húsgagnahönnunar, sem tryggir notandanum sjálfbæra, viðburðaríka og endingargóða hönnun.
HLA leggur mikla áherslu á félagslega og umhverfislega sjálfbærni. Það á við um form, efni og framleiðslu auk mikilvægi nothæfs rýmis sem býður upp á samkomur og félagsleg samskipti.
Þessi virðisaukandi nálgun er grundvallaratriði í fjölda byggingarverkefna HLA um allan heim, hvort sem um er að ræða flókið svæðisskipulag eða smíði tilkomumikilla kennileita. Hugmyndir HLA spretta upp úr gefandi samræðum við samstarfsaðila okkar, viðskiptavini og notendur. Þannig tryggir starfsfólkið að byggingarnar verði nothæfar til framtíðar, sem aftur er grundvöllur fyrir hagkvæmum líftíma.
