Hönnunin
Ólafur Eliasson, í samvinnu við arkitektarstofurnar Henning Larsen og Batteríið Arkitektar, hannaði glerhjúpinn sem umlykur Hörpu. Eitt af megineinkennum hans er tilvísun í ýmis fyrirbæri úr náttúrunni og einstök birtuskilyrði landsins. Aðalhönnuðir Hörpu eru Teiknistofa Henning Larsens í Kaupmannahöfn og Batteríið. Teiknistofa Henning Larsen er þekkt fyrir arkitektúr og hefur hannað mörg sambærileg hús. Þar má meðal annars nefna Óperuna í Kaupmannahöfn og Tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Uppsölum.
Batteríið Arkitektar hefur unnið til fjölmargra verðlauna fyrir hönnun, þar á meðal Skála Alþingis við Kirkjustræti. Fyrirtækið starfar á alþjóðavettvangi og í nánu samstarfi við verktaka, arkitekta og verkfræðinga á Norðurlöndum, Norður-Ameríku og Ástralíu.
Artec í New York eru hljóðhönnuðir hússins.
Alverktaki er ÍAV.
.

