• Harpa-mynd-facebook

Byggingin

Harpa er 28.000 m2 að stærð og er staðsett við gömlu höfnina í Reykjavík. Hönnunin er undir áhrifum frá einstakri og tilkomumikilli náttúru Íslands. Meginhugmyndin til grundvallar byggingunni er að skapa kristallað form með fjölbreyttum litum sem sóttir eru í nærliggjandi náttúru og gefur síbreytileg hughrif. Húsið er hannað af Teiknistofu Henning Larsens í Kaupmannahöfn í samvinnu við Batteríið arkitekta í Hafnarfirði. Ólafur Elíasson hannaði glerhjúpinn sem umlykur húsið í samvinnu við arkitekta teiknistofunnar.

Við hönnun hússins var lögð áhersla á fjölbreytileika og góða aðstöðu fyrir ýmis konar tónleika og ráðstefnur. Hægt verður að skilja að sali þannig að mismunandi starfsemi getur farið fram á sama tíma, án truflunar. Að auki verða mörg minni rými og fundarherbergi sem munu nýtast vel til funda-og ráðstefnuhalds.



 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica