Ráðstefnumiðstöð
Í Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu verður ein glæsilegasta ráðstefnuaðstaða á Íslandi. Þar má mjög auðveldlega halda stórar alþjóðlegar ráðstefnur og þing fyrir tiltekna hópa, t.d. læknaráðstefnur, þing Norðurlandaráðs, landsþing stjórnmálaflokka og stórra félagasamtaka sem og aðalfundi stórra hlutafélaga. Í húsinu verða fjórir salir, sá stærsti með 1800 sætum, einnig verða 16 smærri salir fyrir allar gerðir funda og ráðstefna.


