Vladimir Ashkenazy leiðir verkefnaval Tónlistar- og ráðstefnuhússins fyrstu árin. Umboðsskrifstofan Harrison Parrott er sérstakur ráðgjafi vegan listræns starfs. Listræn stefna
- Markmið Tónlistar- og ráðstefnuhússins er að skapa fyrsta flokks aðstöðu og standa fyrir viðburðum er standast alþjóðlegan samjöfnuð.
- Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verður heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
- Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verður stærsti og vandaðasti samkomustaðurinn fyrir menningarviðburði á Íslandi.
- Listræn stefna þess verður leiðandi í tónlistarlífi landsins og beinir sjónum heimsins að Íslandi
- Tónlistar- og Ráðstefnuhúsið mun styrka stöðu landsins í alþjóðlegri samkeppni á sviði menningarstarfsemi.
- Listrænni stefnu Tónlistar- og ráðstefnuhússins er ætlað að auka gæði, aðgengileika og framboð menningarviðburða fyrir almenning,
- Listrænni stefnu er ætlað koma list á framfæri, styðja kennslu í listanámi og auðga menningarlíf landsmanna.
- Tónlistar- og ráðstefnuhúsið mun bjóða upp á bestu fáanlegu innlenda og erlenda tónlistarmenn, bæði einleikara, hópa og stærri hljómsveitir.
- Tónlistar- og ráðstefnuhúsið mun leggja áherslu á fjölbreytni í framboði á tónlist og höfða til mismunandi áhugahópa.
- Tónlistar- og ráðstefnuhúsið mun leggja áherslu á viðeigandi tónlist sem veitir áheyrendum unað og gleði og veitir innsæi í og skilning á viðfangsefnum tónsköpunar samtímans.
- Tónlistar- og ráðstefnuhúsið mun vinna að eflingu tónlistar á Íslandi með því að skapa tónlistarfólki aðstöðu til æfinga, þjálfunar og listrænnar þróunar.
Vladimir Ashkenazy leiðir verkefnaval Tónlistar- og ráðstefnuhússins fyrstu árin. Umboðsskrifstofan Harrison Parrott er sérstakur ráðgjafi vegna listræns starfs.


