Tónleikasalurinn - Concert hall

Tónlistarsalurinn

Tónlistarsalurinn er á 2. hæð hússins og er stærsti salur hússins. Hönnun og útfærsla salar skapar glæsilega og fjölbreytta umgjörð utan um tónlistarviðburði og aðrar uppfærslur í salnum. Hljómburðurinn verður framúrskarandi fyrir allar tegundir tónlistar. Sjónlínur og aðstaða áhorfenda verður fyrsta flokks. Lofthæð verður mikil ásamt stórri og óskertri sviðsumgjörð. Aðstaða til æfinga og uppsetningar tónleika er mjög góð. Búningsherbergi og aðstaða listamanna, stjórnenda og einsöngvara eru framúrskarandi sem og æfingaaðstaða fyrir listamenn. Auðvelt verður að koma við  uppsetningu og flutningi búnaðar á milli viðburða. Stórt svið og hljómsveitargryfja er í salnum og hægt er að nýta svalir bak við svið og til hliðar.

Staðreyndir um salinn:

  • Tekur mest 1.800 manns í sæti þar af 166 sæti aftan við sviðið. Aðeins nýtt á sinfónískum tónleikum. 
  • Hægt að loka svölum svo salurinn sé fullsetinn með 800 sætum.
  • Sætafjöldi breytilegur eftir tegund viðburða.
  • 1.300 m².
  • Lofthæð 23m.
  • Ómunarrými.
  • Aðstaða fyrir upptöku og útsendingar.
  • Stjórnbúnaður á sviði.
  • Stjórnherbergi að baki salarins.





flnavísl


langnaven


Þetta vefsvæði byggir á Eplica