Ráðstefnusalurinn
Ráðstefnusalurinn er á 2. hæð hússins. Tvennar dyr tengja Ráðstefnusalinn og Æfingasalinn. Þannig er hægt að nýta salina saman fyrir stærri viðburði. Svalir eru við báða enda salarins, sviðið er færanlegt og sæti eru að hluta til útdraganleg sem og laus. Gert er ráð fyrir að mögulegt verði að breyta ómunartíma í salnum og þannig hægt að aðlaga að mismunandi viðburðum. Má þar nefna ráðstefnur, tónleika, veislur og fleira. Gestir geta notið útsýnis á stórum svölum sem snúa í vesturátt.
Staðreyndir um salinn:
- Tekur 750 manns í tónlistaruppröðun.
- Tekur 1.100 manns standandi.
- Tekur 650 manns í veisluuppsetningu.
- Tekur 160 manns í fundauppsetningu.
- Tekur 630 manns í skólastofuuppsetningu.
- Lofthæð 8 metrar.
- Flatt gólf.
- Útdraganleg sæti að hluta.
- Lausir stólar.
- Stjórnklefar í báðum endum salarins.
- Hægt að skipta salnum í tvo sali með fellivegg, hvor tekur 300 til 350 manns miðað við tónleikauppröðun.
- Möguleiki á kvikmyndasýningu.
- Tengibrunnar í gólfi fyrir tölvur, rafmagn, vatn og frárennsli.



