re-salur05_m-(3)

Æfingasalurinn

Æfingasalurinn er á 2 hæð og liggur á milli Tónlistarsalarins og Ráðstefnusalarins. Gólfið er flatt sem bíður upp á fjölbreytta notkun á salnum til dæmis standandi eða sitjandi tónleika, sem sýningarsvæði eða fyrir borðhald. Mögulegt er að breyta ómunartíma salarins og hljómburðurinn er sérstaklega hannaður miðað við tónlistarviðburði eins og í öðrum sölum hússins. Svalir eru allan hringinn og sviðið er færanlegt. Tvennar dyr tengja Æfinga- og Ráðstefnusalina þannig að auðvelt er að nýta þá saman. Myndarlegur gluggi milli Æfingarsalarins og forrýmis hleypir inn dagsbirtu. 

Staðreyndir um salinn:

  • Tekur mest 450 manns í sæti. 700 manns standandi.
  • Tekur 420 manns í veisluuppsetningu.
  • Tekur 140 manns í fundauppsetningu.
  • Tekur 390 manns í skólastofuuppsetningu.
  • 580 m².
  • Lofthæð 13 metrar.
  • Laus staflanlegir stólar.
  • Tengibrunnar í gólfi fyrir tölvur og rafmagn.
  • Möguleiki á kvikmyndasýningum.
  • Svalir.





flnavísl


langnaven


Þetta vefsvæði byggir á Eplica