Tónlistaraðstaðan
Í Hörpu verður framúrskarandi aðstaða fyrir alla tegund tónlistar og umgjörð þeirra eins og best verður á kosið. Í húsinu verður hágæða hljómburður sem hentar vel fyrir mismunandi tegundir tónlistar. Salirnir eru í ýmsum stærðum og öll aðstaða mjög vönduð. Í Tónlistarsalnum er hljómburðurinn mjög góður fyrir hina ýmsu tónlistarviðburði. Sjónlínur og þægindi áheyranda verða fyrsta flokks í alla staði. Æfingasalurinn og Ráðstefnusalurinn bjóða upp á ólíka uppröðun með færanlegu sviði og flötu gólfi.
Harpa er væntanlegt aðsetur Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Íslensku Óperunnar.


