Radstefnusalurinn

Ráðstefnusalurinn

Glæsilegur ráðstefnusalur á 2. hæð sem rúmar mest 750 gesti í sæti. Salurinn er sérhannaður sem ráðstefnusalur með best fáanlega ljósabúnaði, hljóðkerfi og túlkaklefum. Sviðið er færanlegt og sætin útdraganleg að hluta sem og laus. Hægt verður að skipta salnum í tvennt með fellivegg og mun hvor salur um sig rúma um 300 til 350 gesti í sæti. Tvennar dyr tengja Ráðstefnusalinn og Æfingasalinn. Þannig verður hægt að nýta salina saman fyrir stærri viðburði. Svalir eru við enda salarins.
Salurinn er einnig tilvalinn fyrir veislur, kvöldverðarboð, sýningar og tónleika. Gestir geta notið kvöldsólar á stórum svölum sem snúa í vesturátt.

Staðreyndir um salinn:

  • Rúmar 1100 standandi gesti.
  • Rúmar 750 gesti í leikhúsuppröðun.
  • Rúmar 630 gesti í skólastofuuppsetningu.
  • Rúmar 160 gesti í fundaruppsetningu. 
  • Rúmar 650 gesti í veisluuppsetningu.
  • Lofthæð 8 metrar.
  • Stærð 735 m².
  • Lengd og breidd 35x21.
  • Flatt gólf.
  • Útdraganleg sæti að hluta.
  • Laus sæti.
  • Stjórnklefar í enda salarins.
  • Hægt að skipta salnum í tvo sali með fellivegg, hvor tekur 300 til 350 manns miðað við leikhúsuppröðun.
  • Möguleiki á kvikmyndasýningu.
  • Tengibrunnur í gólfi fyrir tölvur, rafmagn, vatn og frárennsli.
  • Festingar í lofti.





flnavísl


langnaven


Þetta vefsvæði byggir á Eplica