Fjórði salurinn
Fjórði salurinn er á 1. hæð hússins og mun henta vel fyrir minni ráðstefnur, fyrirlestra, fundi og kvikmyndasýningar. Sæti eru föst og hallandi og er sviðið færanlegt. Einnig er mögulegt að vera með laus sæti að hluta.
Staðreyndir um salinn
- 195 manns í sæti.
- 180 m2.
- Lofthæð 8m.
- Stjórnklefi í enda salarins.
- Festingar í lofti.
- Tengibrunnar í gólfi fyrir tölvur og rafmagn.



