Veisluaðstaða
Í Hörpu er hægt að skipuleggja stórar sem smáar veislur.
Hörpudiskur, veisluþjónusta Hörpu, mun bjóða upp á alhliða veisluþjónustu fyrir ráðstefnur, fundi og aðra mannfagnaði.
Í Hörpu eru mörg opin rými, en þar verður hægt að setja upp stórar og smáar móttökur og kokteila fyrir sýningar-, tónlistar- og ráðstefnugesti.
Hörpudiskur mun vera með marga færanlega bari sem hægt verður að staðsetja víðsvegar um húsið. Vínveitingar verða í boði fyrir tónleikagesti og einnig verður er hægt að fá léttar veitingar með ef þess er óskað.
Mikið verður lagt upp úr íslenskri matargerð og verður lögð sérstök áhersla á að gera ferð erlendra veislu-og ráðstefnugesta til Íslands sem eftirminnilegasta. Í veislum verða matseðlar árstíðabundnir og rík áhersla lögð á íslenskt hráefni.
Yfirmatreiðslumaður Hörpudisks er Bjarni Gunnar Kristinsson. Hann hefur verið í íslenska kokkalandsliðinu frá árinu 2000 og var fyrirliði liðsins þegar það hlaut gull- og silfurverðlaun á ólympíuleikum matreiðslumeistara í Erfurt í Þýskalandi 2008.
Oft eru tilefnin svo sérstök að þeim hæfir engin venjuleg veisla eða umgjörð. Hvað sem þig langar að gera, hafðu samband við veisluþjónustu Hörpu og við sérsníðum lausn eftir þínum þörfum.
