• Hálfur

Silfurberg

Silfurberg er ráðstefnusalur á annari hæð í Hörpu. Salurinn rúmar mest 750 manns í sæti en talsvert fleiri ef viðburður er fyrir standandi áheyrendur. Svið getur verið í mismunandi stærðum og er færanlegt. Sæti eru laus og gólfið flatt, en möguleiki á að hafa þau útdraganleg og hallandi að hluta við enda salarins. Hægt er að skipta salnum í tvennt með fellivegg sem er hljóðeinangraður og rúmar þá hvor hluti hans mest 325 gesti í sæti. Tvennar hljóðeinangraðar dyr tengja Silfurberg og Norðurljós, en einnig er hægt að samnýta salina fyrir stærri viðburði. Salurinn hentar vel fyrir alls kyns ráðstefnur, veislur og listviðburði. Hann er sérhannaður sem ráðstefnusalur og býr yfir vönduðum tæknibúnaði. Salurinn hentar einnig vel fyrir rafmagnaða tónlist. Hljómburður er miðaður við talað mál og er stillanlegur.



Staðreyndir um salinn

  • Stærð salar 735 m²

  • Lofthæð 8,5 m

  • Lengd og breidd 35x21.

  • Laus sæti en útdraganleg að hluta

  • Flatt gólf

  • Stillanlegur ómtími

  • Aðstaða fyrir upptökur

  • Stjórnklefar í báðum endum salarins

  • Tengibrunnar í gólfi fyrir tölvur, rafmagn, vatn og frárennsli.


 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica