Fundarherbergi
Í Hörpu er fundaraðstaða fyrir stærri og minni fundi. Stærsta fundarherbergið er á fyrstu hæð og rúmar um 120 manns í sæti en hægt er að skipta þessum sal í tvennt með fellivegg. Einnig eru fjögur minni fundarherbergi á fyrstu hæð með færanlegum milliveggjum sem að rúma allt að 20 manns en mögulegt er að breyta þessum fjórum í tvö stærri fundarherbergi. Á fjórðu hæð eru einnig fjögur minni fundarherbergi sem að rúma allt að 12 manns í sæti.Allir salirnir eru búnir góðum tækjabúnaði, svo sem skjávarpa, fjarfundarbúnaði og hljóðkerfi.

