Salirnir
Skoðaðu salina, sýningarýmin og fundarherbergin til að sjá hvað hentar þér.
Skoðaðu salina, sýningarýmin og fundarherbergin til að sjá hvað hentar þér.
Kaldalón er minnsti salurinn í húsinu og er staðsettur á fyrstu hæð Hörpu. Hann hentar mjög vel fyrir allar tegundir tónlistar sem og ráðstefnur, fundi, kvikmyndasýningar og fyrirlestra. Svið salarins er færanlegt en einnig má nota gólfið sem svið fyrir tónlistarmenn eða fyrirlesara. Sæti eru föst og hallandi að sviði. Salurinn tekur allt að 195 í sæti. Mögulegt er að breyta ómunartíma salarins þannig hægt að aðlaga hann að mismunandi tegundum viðburða.