Fyrsta flokks ráðstefnu og fundaraðstaða
Aðstaða fyrir alls kyns tilefni
Hágæða tæknibúnaður, fyrsta flokks aðstaða og veisluþjónusta gera viðburðinn þinn í Hörpu ógleymanlegan.
Í Hörpu er ein glæsilegasta aðstaða á Íslandi fyrir ráðstefnur, þing, fundi, sýningar og aðra viðburði fyrir stóra og litla hópa.
Eldhús, veitingastaður, kaffihús og útsýnisbar eru í húsinu ásamt færanlegum börum. Einnig eru túlkaklefar og tæknirými við salina.
Gott sýningarsvæði er í húsinu með tengibrunnum fyrir tölvur og rafmagn.
Í Hörpu er mikið af alls kyns tónleikum og listviðburðum, en að auki er í húsinu glæsileg ráðstefnu- og fundaraðstaða.
Fullkominn tæknibúnaður, fyrsta flokks aðstaða og þjónusta gera okkur kleift að tryggja þér einstaka umgjörð fyrir þinn viðburð.

