Kammermúsíkklúbburinn hefur starfað óslitið frá árinu 1957 og heldur nú tónleika sína í fyrsta sinn í Hörpu, en tónleikarnir eru jafnframt 55 ára afmælistónleikar Klúbbsins. Á efnisskrá eru mjög fjölbreytt verk:
Jan Dismas Zelenka: Sónata nr. 4 í g-moll fyrir tvö óbó, fagott og fylgirödd
Georg Friedrich Handel: Þrjá aríur úr Níu þýskum aríum fyrir sópran, fiðlu/óbó og fylgirödd:
6. Meine Seele hört im Sehen;
7. Die ihr aus dunklen Grüften den eitlen Mammon grabt;
9. Flammende Rose, Zierde der Erden
Bela Bartók: Strengjakvartett nr. 4
Flytjendur eru Camerarctica kammerhópurinn, ásamt Mörtu Guðrúnu Halldórsdóttur sópran.
(Marta Guðrún Halldórsdóttir, sópran; Eydís Lára Franzdóttir og Peter Tompkins, óbó; Kristín Mjöll Jakobsdóttir, fagott; Hildigunnur Halldórsdóttir og Bryndís Pálsdóttir, fiðla; Svava Bernharðsdóttir, víóla; Sigurður Halldórsson, selló, Guðrún Óskarsdóttir, sembal.)
------
