Kiri Te Kanawa kemur til landsins í febrúar og mun halda tónleika í Hörpu ásamt píanóleikara. Kanawa sem er án efa einhver mesta sópransöngkona samtímans verður við söng og kennslu í Metropolitan óperunni í New York út janúar og kemur beint þaðan til tónleikahaldsins hér. Kiri varð heimsfræg á einni nóttu þegar hún söng við brúðkaup Karls Bretaprins og Díana Spencer en viðburðinum var sjónvarpað um allann heim. Frá þeim degi hefur Kanawa verið þekktasta óperusöngkona heims.
Kiri mun bjóða nokkrum íslenskum söngvurum að koma fram með sér á tónleikunum en hún hefur fylgst mjög vel með ungu íslensku söngfólki síðustu ár.
Tónleikar hennar hér á landi hafa fengið fádæma lof gagnrýnenda og iðulega hafa miðar á viðburðina selst upp á met hraða. Þetta verður í fyrsta sinn sem Kiri syngur í Hörpu og margir tónlistarunnendur hafa beðið þess dags. Kiri mun bjóða völdum ungum íslenskum söngvurum að stíga á svið með sér. Kiri þekkir vel til ungu söngkynslóðarinnar okkar en hún hefur gefið sér tíma til að kenna "Masterclass" tíma í Söngskóla Reykjavíkur með reglulegu millibili.
Kiri, sem sannarlega er orðin íslandsvinur númer eitt hefur komið til landsins að minnsta kosti einu sinni á ári frá því hún hélt hér fyrst tónleika árið 2003. Hún hefur sem fyrr segir kennt afburðar söngvurum söng í Söngskólanum en þá er það ekki síst aðal áhugamálið hennar laxveiðin sem dregur Kiri til Íslands ár eftir ár.
SANNARLEGA INSPIRED BY ICELAND
Kiri lagði verðlaunaherferðinni Inspired by Iceland lið í fyrra þegar hún stóð sem hæst. Í myndbandinu fór hún fögrum orðum um Ísland og sagði loftið hvergi eins hreint í heiminum og á Íslandi. Sjá myndbrot
http://www.inspiredbyiceland.com/stories/featured/detail/item22969/
HEIMILDARMYND UM ÍSLAND FYRIR ROLEX OG BRITISH AIRWAVES Hún lét ekki þar við sitja heldur framleiddi Rolex úraframleiðandinn sérstaka kvikmynd um íslandsáhuga hennar sem sýnd var í flugvélum British Airwaves um allann heim. Myndin var framleidd árið 2007 og er ennþá til sýnis í vélum félagsins. "Ég elska Ísland, mér er svo vel tekið hérna af öllum sem ég hitti. Náttúran er stórbrotin og þið eruð rík að eiga þetta allt saman", segir Kiri um Ísland. Kiri hefur mest stundað stangveiði hér á landi en hún er forfallinn laxveiðiáhugamaður og hefur nú veitt í báðum Rangánum, Svartá og Blöndu svo eitthvað sé nefnt.
"Ég kem frá eyju og mér finnst Ísland minna mig að mörgu leyti á Nýja Sjáland. Þar er fólkið opið og einlægt rétt eins og á Íslandi. Ég vildi líka að þessi heimildarmynd um mig sýndi mig við þær aðstæður sem ég unni mér vel í og á þeim stöðum sem mér þykir vænt um", sagði Kiri um þá ákvörðun að taka heimildarmyndina á Íslandi.
Efnisskrá:
G F Handel
Non disperar, chi'sa ? (Guilio Cesare)
Se pietà di me non senti (Guilio Cesare)
Piangerò la sorte mia (Guilio Cesare)
Franz Liszt Pace Non Trovo
Die Loreley
Oh! Quand je dors
Samuel Barber Do not utter a word, Anatole (Vanessa)
-Hlé-
Hector Berlioz
Villanelle (Les nuits d'été)
Le Spectre de la Rose (Les nuits d'été)
L'Ile inconnue (Les nuits d'été)
Carlos Guastavino La rosa y el sauce
Qué linda, la madreselva! (Flores Argentinas)
El clavel del aire blanco (Flores Argentinas)
Jake Heggie Monologue (Masterclass)
Tími: 20:00
Hús opnar: 19:00
Miðaverð: 3900 TIL 12.900
Úrvalssæti: 14900
Svæði 1: 12900
Svæði 2: 9800
Svæði 3: 5900
Svæði 4:3900
