Ónúmeruð sæti en vakin er athygli á því að öll sæti í salnum eru jafngóð !
MAKE LOVE NOT WAR!
Árið er 1968, staðurinn er Central Park í New York. Við hittum fyrir Claude, saklausan sveitapilt frá Oklahoma sem er á leið á herkvaðningarskrifstofuna til að ganga í herinn. Stríðið í Víetnam vofir yfir. Á leið sinni í gegnum Central Park kynnst hann hippunum Berger og fleirum úr Hár-genginu. Vinahópurinn hefur ákveðið að berjast gegn stríði og óréttlæti í heiminum með söng, ást og gleði.
Hárið er fyrsti stóri rokksöngleikurinn og hefur að bera mörg af þekktustu söngleikjalögum allra tíma, þar á meðal; Að eilífu, Blikandi stjörnur, Lifi ljósið og titillag verksins; Hár!
Sýningin er sett upp af leikhópnum Silfurtunglinu, þar sem koma saman margir af bestu söngvurum landsins og ljá hrífandi persónum lífi með leik og söng. Ekki missa af þessari einstöku sýningu - áhorfendur enda dansandi uppi á sviði með leikurum og fara heim með sól í hjarta!
Leikstjóri: Jón Gunnar Þórðarson
Leikmynd: R. Mekkín Ragnarsdóttir
Leikarar og söngvarar:
Berger: Eyþór Ingi Gunnlaugsson
Claude: Matthías Matthíasson
Hud: Jóhannes Haukur Jóhannesson/Magni Ásgeirsson
Sheila: Jana María Guðmundsdóttir
Jeanie: Erna Hrönn Ólafsdóttir
Dionne: Ólöf Jara Skagfjörð
Voffi: Pétur Örn Guðmundsson
Önnur hlutverk og dansflokkur: Ívar Helgason
Hljómsveit:
Gítar: Hallgrímur Ingvi Jónasson
Bassi: Stefán Gunnarsson
Trommur: Valgarður Óli Ómarsson

Fjórar stjörnur
Algjör snilld! Morgunblaðið
Yndisleg nostalgía! Vikan
Sýning sem vert er að sjá aftur og aftur! Vikudagur
EFTIR 15 UPPSELDAR SÝNINGAR Á AKUREYRI FÖRUM VIÐ STOLT SUÐUR!
Vinsamlegast athugið að sýningin er ekki við hæfi yngri barna.
