YANN TIERSEN ásamt hljómsveit á Listahátíð
Franski tónlistarmaðurinn Yann Tiersen er einn frumlegasti brautryðjandi sinnar tónlistarkynslóðar og dáður fyrir marglaga og djúpa músík sína sem hann setur fram í heillandi og melódískum tónsmíðum. Ákveðinn hljómur er einkennandi í tónlist hans sem þekkja má á fjölda ólíkra hljóðfæra sem hann notar gjarnan saman: gítar, synthesizer eða fiðlu með hljóðfærum á borð við melódikku, xylofón, leikfangapíanó, harpsicord, harmonikku og jafnvel ritvél.
Yann Tiersen hefur undanfarna mánuði fylgt nýjustu plötu sinni Skyline eftir á tónleikaferðalagi um Evrópu og Bandaríkin en þaðan kemur hann beint til Íslands. Yann Tiersen og félagar, þeir Stéphane Bouvier, Robin Allender, Lionel Laquerriere, Neil Turpin og Færeyingurinn Olavur Jakupsson, hafa sett saman sérstakt órafmagnað tónleikaprógramm úr Skyline fyrir Íslendinga.
Það er Listahátíð einstök ánægja að bjóða Yann Tiersen og hljómsveit velkomna á hátíðina í vor.
Yann Tiersen sló rækilega í gegn víða um heim með tónlist sinni í frönsku kvikmyndinni Amélie (2000) í leikstjórn Jean-Pierre Jeunet. Hann hefur gert fjölmargar plötur síðan sem hlotið hafa frábærar viðtökur og meðal annars kvikmyndatónlistina við Good Bye Lenin! Á undanförnum áratug hefur hann farið í fjölda eftirminnilegra tónleikaferða sem hafa endurspeglað stöðuga þróun hans sem tónlistarmanns og sístækkandi hóp dyggra aðdáenda víða um heim. Yann Tiersen hefur sérstakt dálæti á samstarfi við hina ólíku tónlistarmenn, þykir magnaður á tónleikum og sagt er að í tónlist hans megi finna tengingu við evrópska klassík og franska þjóðlagatónlist.
Nýjasta plata Tiersen, Skyline kom út í Evrópu árið 2011 og er hún sú sjöunda sem hann sendir frá sér. Platan kemur út í Bandaríkjunum í apríl hjá Anti-Records, sem hann hefur verið hjá frá 2010. Platan var að mestu tekin upp á heimili hans á lítilli eyju undir ströndum Bretagne skagans og hljóðblönduð af hinum þaulreynda upptökustjóra Ken Thomas sem hefur meðal annars unnið með Sigur Rós. Monuments er fyrsta smáskífan af Skyline og gefur góða hugmynd um þann hljóðheim Yanns sem hann hefur náð svo snilldarlegum tökum á, heimur rafmagnsgítara og gamaldags hljóðgervla sem haldið er uppi af ótrúlegum lagasmíðum.
Tenglar
Heimasíða Yann Tiersen, Yann Tiersen á Myspace, Facebook síða Yann Tiersen
