James Taylor

18.maí í Hörpu

 

CONCERT KYNNIR MEÐ STOLTI: MARGFALDAN GRAMMY VERÐLAUNAHAFA

 

James Taylor, einhver þekktasti söngvari og lagahöfundur 20. aldarinnar er væntanlegur til landsins. Taylor er án efa eitt áhrifamesta - og vinsælasta söngvaskáld sem fram hefur komið. Einstakur lagahöfundur og tónlistarmaður sem snert hefur kynslóð eftir kynslóð. Taylor öðlaðist frægð á áttunda áratugnum með lögum eins og hinu geysivinsæla „You've Got A Friend“ og „Fire and Rain“ en á þeim tíma gerði hann í raun hugtakið „singer/songwriter“ að haldbæru í huga almennings.

 

*Rolling Stone tímaritið kallar hann einn af þeim sem skapaði 20. öldina í tónlist.

*Hann er margfaldur Grammy verðlaunahafi.

*Hann er meðlimur í Rock-n-Roll Hall of Fame.

*Hann er Heiðursdoktor frá Berkley College of Music *Hann er meðlimur í Songwriters Hall of Fame

 

Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferð James Taylor um alla Evrópu í vor

 

ÁSTÆLL FLYTJANDI

Með einlægum og viðfelldnum flutningi sínum snerti hann sameiginlegan hjartastreng í fólki og áhrif hans á viðlíka listamenn sem á eftir hafa komið verða seint ofmetinn. Taylor er margfaldur Grammy verðlaunahafi og var innlimaður í hina virtu Frægðarhöll rokksins árið 2000. Plötur hans á áttunda áratugnum seldust allar í gull- eða platínusölu og lagasafn hans frá 1976 er nú farið yfir tíu milljóna markið sem gerir hana af einni mest seldu plötu allra tíma.

 

SÍÐUSTU MISSERI

Undanfarin ár hefur Taylor verið virkur sem aldrei fyrr, í hljómleikahaldi, plötuútgáfu og hinum ýmsu baráttumálum fyrir betri heimi. Síðustu hljóðversplötum hefur þá verið vel tekið, jafnt af gagnrýnendum sem aðdáendum en síðustu plötu sína, Live at the Troubadour, gerði hann ásamt Carole King, lagahöfundinum þekkta sem samdi einmitt vinsælasta lag hans, „You've Got A Friend“. Sú plata hefur nú selst í yfir hálfri milljón eintaka.

 

JAMES TAYLOR

Taylor er fæddur árið 1948 er fjölskylda hans músíkölsk, öll systkini hans (þrír bræður og ein systir) hafa líka dýrkað tónlistargyðjuna og gefið út plötur. Taylor hóf ferilinn á sjöunda áratugnum sem þjóðlagasöngvari, fluttist til New York og mætti þar ýmislegu mótmæli. Greindist m.a. með krónískt þunglyndi og var háður heróíni um tíma. Hann spilaði í Greenwich Village hverfinu gróskumikla þar sem Dylan og félagar skerptu á sér en fann ekki fótum sínum forráð og flutti til Lundúna. Þar komst hann í kynni við Peter Asher, fyrrum mág Paul McCartney sem var þá að vinna fyrir Apple fyrirtæki Bítlanna. Fór svo að Apple gaf út frumburð Taylor árið 1968.  Platan vakti litla athygli og það var ekki fyrr en tveimur árum síðar sem Taylor náði í gegn með plötunni Sweet Baby James. Lagið „Fire and Rain“, sem er byggt á minningum frá geðsjúkrahúsvistum sló í gegn og Taylor rataði á forsíðu Time sem leiðtogi nýju söngvaskáldabylgjunnar í Bandaríkjunum.

 

 

Níundi áratugurinn átti svo eftir að reynast Taylor mótdrægur eins og svo mörgum af hans kynslóð. Hann var þó duglegur við tónleikahald og aðdáendur voru tryggir, keyptu plötur hans og komu á tónleika af mikilli trúfestu. Taylor hélt uppteknum hætti á tíunda áratugnum, tónleikar hans voru vinsælir sem fyrr og plata hans frá árinu 1997, Hourglass, fékk góða dóma og með henni nældi hann sér í Grammyverðlaun fyrir bestu poppplötuna. October Road (2002) gerði það gott einnig og Taylor hefur fram á þennan dag viðhaldið bæði virðingu og vinsældum.

 

Tónleikaferðalag hans á síðasta ári um Bandaríkin var t.d. með ólíkindum farsælt og þurfti að koma honum fyrir á íþróttaleikvöngum í einhverjum tilfellum, slík var eftirsóknin eftir þessum hæfileikamanni. Og ekkert lát virðist þar vera á...

James Taylor

  • Dagsetning

    • 18. maí 2012, 20:00
  • Verð

    15900 kr. / 7900 kr.


Viðburðaleit


Viðburðir

febrúar 2012

(sleppa dagatali)
S M Þ M F F L
      01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Opnunartími miðasölu

Virkir dagar:

10:00 – 18:00 og lengur á tónleikakvöldum

Helgar:

12:00 – 18:00 og lengur á tónleikakvöldum
 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica