Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna

Eldborg 29.janúar

 

Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna lýkur áttunda starfsári sínu með tónleikum í Eldborgarsal Hörpu Sunnudaginn 29. janúar 2012 kl. 16.

Um 100 ungir hljóðfæraleikarar frá fjölmörgum tónlistarskólum leggja hart að sér við æfingar í janúar undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar hljómsveitarstjóra. Einleikari með hljómsveitinni er ungur sellóleikari, Ragnar Jónsson. Hljómsveitin er samstarfsverkefni tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu.

Á tónleikunum verða flutt verk fyrir hljómsveit og kór og hefur ST stofnað til samstarfs við Kóra Flensborgarskóla og Menntaskólans í Reykjavík sem einnig koma fram á tónleikunum. Stjórnendur kóranna eru Hrafnhildur Blomsterberg og Guðlaugur Viktorsson.

 

Efnisskrá:

George Bizet:                                L'Arlésienne, Svíta fyrir hljómsveit

Pjotr Ilych Tsjhaíkovskíj:             Pezzo capriccioso op. 62 fyrir selló og hljómsveit

Hjálmar H. Ragnarsson:             -Áfangar, verk fyrir kór og hljómsveit við ljóð Jóns Helgasonar. Samvinnuverkefni ST, Kórs Flensborgarskóla og Kórs MR.

Jan Sibelius:    Finlandia

Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna

  • Dagsetning

    • 29. jan. 2012, 16:00
  • Verð

    2000 kr.


Viðburðaleit


Viðburðir

febrúar 2012

(sleppa dagatali)
S M Þ M F F L
      01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Opnunartími miðasölu

Virkir dagar:

10:00 – 18:00 og lengur á tónleikakvöldum

Helgar:

12:00 – 18:00 og lengur á tónleikakvöldum
 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica