Söngveisla í Hörpu

Karlakórinn Þrestir 19.febrúar í Eldborg - UPPSELT!

 

Karlakórinn Þrestir verður 100 ára sunnudaginn 19.febrúar 2012.  Til að fagna því, en um leið minna á 100 ára starf íslenskra karlakóra, efna Þrestir til tónleika á þessum degi, undir nafninu Söngveisla í Hörpu.  Tónleikarnir eru í Eldborgarsal Hörpu og hefjast kl.20 þetta sunnudagskvöld, sem reyndar er einnig Konudagurinn 2012!

 

Á tónleikunum koma fram, auk Karlakórsins Þrasta undir stjórn Jóns Kristins Cortez, einsöngvarar og tónlistarmenn á borð við Bergþór Pálsson, Björgvin Halldórsson, Egil Ólafsson, Garðar Thór Cortes, Gissur Pál Gissurarson, Hjörleif Valsson, Jóhann Sigurðarson, Jónas Þóri, Nönnu Maríu Cortes, Óskar Pétursson, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Örn Árnason. Auk þessa einvalaliðs koma svo Karlakór Reykjavíkur, Karlakór Keflavíkur, Karlakór Selfoss, Karlakór Hreppamanna og síðast en ekki síst Kór Eldri Þrasta, til liðs við Þresti og flytja mörg helstu karlakóralögin við undirleik sinfóníusveitar. Eitt hundrað ungmenni úr Hafnarfirði munu loks koma til liðs og sviðs og ljúka tónleikunum á verðugan hátt!

 

Söngveisla í Hörpu

  • Dagsetning

    • 19. feb. 2012, 20:00
  • Verð

    5900 kr. / 3000 kr.


Viðburðaleit


Viðburðir

febrúar 2012

(sleppa dagatali)
S M Þ M F F L
      01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Opnunartími miðasölu

Virkir dagar:

10:00 – 18:00 og lengur á tónleikakvöldum

Helgar:

12:00 – 18:00 og lengur á tónleikakvöldum
 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica