Sigrún spilar Sjostakovitsj

Sinfóníuhljómsveit Íslands -10.5.2012 19:30

Stjórnandi: Pietari Inkinen
Einleikari: Sigrún Eðvaldsdóttir
Dmitríj Sjostakovitsj: Fiðlukonsert nr. 1
Jean Sibelius: Sinfónía nr. 2

 

Finnski hljómsveitarstjórinn Pietari Inkinen vakti gríðarlega hrifningu hljóðfæraleikara og tónleikagesta þegar hann stjórnaði SÍ í febrúar 2010 og var honum samstundis boðið að koma aftur til Íslands við fyrsta tækifæri. Hann var skipaður aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Nýja Sjálands árið 2008 og hafa hljóðritanir þeirra á sinfóníum Sibeliusar fyrir Naxos-útgáfuna hlotið einróma lof gagnrýnenda. Túlkun Inkinens á 2. sinfóníunni hlaut fjórar stjörnur í Financial Times nú í apríl og The Guardian sagði að diskurinn í heild væri „hreinasta gullnáma“.

Önnur sinfónía Sibeliusar er sú vinsælasta af þeim sjö sem hann samdi, og ekki að ástæðulausu. Vorið 1900 dvaldi hann í Rapallo á Ítalíu þar sem hann töfraði fram glaðlega tóna sinfóníunnar. „Ég er ástfanginn upp fyrir haus af nýja verkinu. Ég get hreinlega ekki rifið mig frá því!“ skrifaði hann vini sínum niðursokkinn í tónsmíðarnar.

Sigrúnu Eðvaldsdóttur er varla þörf á að kynna fyrir íslenskum hlustendum. Hún hefur löngu spilað sig inn í hjörtu landsmanna með tilfinningaþrunginni túlkun. Hún hefur meðal annars hlotið Bjartsýnisverðlaun Bröste og vann til bronsverðlauna í Sibeliusar-fiðlukeppninni 1990 og silfurverðlauna í Carl Flesch-keppninni tveimur árum síðar.

Fyrri fiðlukonsert Sjostakovitsj er eitt hans áhrifamesta verk, og einn glæsilegasti fiðlukonsert 20. aldarinnar. Þó varð hann til á einhverjum erfiðasta tímanum á ferli tónskáldsins. Árið 1948 var Sjostakovitsj úthúðað á tónskáldaþingi og nokkur lykilverk hans bönnuð. Hann var með fiðlukonsert í smíðum handa David Oistrakh en vissi sem var að innihaldið myndi ekki falla yfirvöldum í geð. Konsertinn beið í skúffunni þar til Stalín lést sjö árum síðar, en þykir nú eitt áhrifamesta verk meistarans.

Sigrún spilar Sjostakovitsj

  • Dagsetning

    • 10. maí 2012, 19:30
  • Salur

    Eldborg

  • Verð

    6500 kr. / 2000 kr.


Viðburðaleit


Viðburðir

febrúar 2012

(sleppa dagatali)
S M Þ M F F L
      01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Opnunartími miðasölu

Virkir dagar:

10:00 – 18:00 og lengur á tónleikakvöldum

Helgar:

12:00 – 18:00 og lengur á tónleikakvöldum
 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica