Rómeó og Júlía á Listahátíð í Reykjavík

Sinfóníuhljómsveit Íslands 25.05.12 kl. 19.30

Hector Berlioz: Rómeó og Júlía
Ilan Volkov hljómsveitarstjóri
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Sveinn Dúa Hjörleifsson, Nicolas Cavallier einsöngvarar
Hljómeyki, Kór Áskirkju, Söngsveitin Fílharmónía, Magnús Ragnarsson kórstjóri

 

Fjöldi ógleymanlegra tónverka hefur orðið til undir áhrifum af harmleikjum Shakespeares. Eitt hið stærsta og óvenjulegasta er Rómeó og Júlía eftir franska meistarann Hector Berlioz, sem hann kallaði „dramatíska sinfóníu“. Hér er sinfóníuformið teygt í ýmsar áttir svo úr verður eins konar bræðingur hljómsveitarverks og óperu. Helstu þættir verksins eru sungnir af mezzósópran, tenór og bassa, auk þess sem Berlioz notar stóran kór í verkinu. Eitt það sem gerir nálgun tónskáldsins svo óvenjulega er þó að margir dramatískustu þættir sögunnar túlkaðir af hljómsveitinni eingöngu.

Rómeó og Júlía á tilurð sína að þakka ítalska fiðlusnillingnum Niccoló Paganini, sem féll á kné frammi fyrir Berlioz að loknum flutningi á víólukonserti þess síðarnefnda og fullyrti að hann væri hinn sanni arftaki Beethovens. Paganini var vel fjáður eftir tónleikaferðir um alla Evrópu, og gaf tónskáldinu 20.000 franka sem þakklætisvott og til þess að hann fengi næði til að semja viðamikið hljómsveitarverk. „Hversu ákaft lifði ég meðan á tónsmíðunum stóð; af hvílíkri áfergju sigldi ég yfir hið mikla haf ljóðlistarinnar, undir hlýjum geislum þeirrar elskandi sólar sem Shakespeare hafði tendrað“, skrifaði Berlioz fullur andagiftar þegar tónsmíðinni var lokið. Þetta einstaklega frumlega og forvitnilega verk er nú flutt í fyrsta sinn á Íslandi.

Sveinn Dúa Hjörleifsson hefur stundað tónlistarnám í Vínarborg undanfarin ár og hefur vakið hrifningu fyrir silkimjúka tenórrödd sína, m.a. í Töfraflautunni á fjölskyldutónleikum Sinfóníunnar síðastliðinn vetur. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir söng sinn og var einn söngvaranna sem kynnt var í þættinum Átta raddir í Ríkisútvarpinu fyrir skömmu. Franski bassasöngvarinn Nicolas Cavallier fer með hlutverk Bróður Lárens í þessari uppfærslu. Hann hóf feril sinn sem Sarastro í Töfraflautunni við Glyndebourne-óperuna, en í heimalandi sínu hefur hann m.a. sungið titilhlutverkið í Brúðkaupi Fígarós. Hann syngur barokktónlist með stjórnendum á borð við William Christie og Marc Minkowski, og kemur beint til Íslands eftir að hafa sungið í Rómeó og Júlíu við Bastilluóperuna í París.


 

Rómeó og Júlía á Listahátíð í Reykjavík

  • Dagsetning

    • 25. maí 2012, 19:30
  • Salur

    Eldborg

  • Verð

    6500 kr. / 2000 kr.


Viðburðaleit


Viðburðir

febrúar 2012

(sleppa dagatali)
S M Þ M F F L
      01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Opnunartími miðasölu

Virkir dagar:

10:00 – 18:00 og lengur á tónleikakvöldum

Helgar:

12:00 – 18:00 og lengur á tónleikakvöldum
 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica