Hringadróttinssinfónían

Sinfóníuhljómsveit Íslands -16. febrúar 2012, Kl. 20.00 17. febrúar 2012, Kl. 20.00  UPPSELT

Howard Shore: Lord of the Rings Symphony
Erik Ochsner: hljómsveitarstjóri
Nancy Allen Lundy: einsöngvari
Hljómeyki, Kór Áskirkju, Söngsveitin Filharmónía, Stúlknakór Reykjavíkur
Margrét Pálmadóttir, Magnús Ragnarsson kórstjórar

 

Hringadróttinssaga J.R.R. Tolkiens er önnur mest selda bók heims. Kvikmyndir Peters Jackson eru meðal þeirra metnaðarfyllstu sem gerðar hafa verið og slógu hvert aðsóknarmetið á fætur öðru við upphaf 21. aldarinnar. Tónskáldið Howard Shore tónsetti myndirnar þrjár og liggja eftir hann vel yfir 10 klukkustundir af tónlist fyrir þær. Hann vann til Óskarsverðlauna 2002 og 2004 fyrir framlag sitt til myndanna, auk Golden Globeverðlauna og fjölda annarra viðurkenninga.

Shore nálgast efnið á sinfónískan hátt og samdi m.a. fjölda stefja sem tengjast ákveðnum persónum, stöðum eða hlutum í sögunni. Í myndinni var tónlistin flutt af Fílharmóníuhljómsveit Lundúna, en undanfarin ár hefur tónleikaútgáfa verksins farið sigurför um heiminn og slegið aðsóknarmet hjá ýmsum hljómsveitum. Þetta verða stórglæsilegir tónleikar þar sem meðal annars koma fram einsöngvarar, fjórir kórar og fjöldi óvenjulegra hljóðfæra, auk þess sem myndefni sem tengist kvikmyndunum og sögu Tolkiens verður varpað á tjald í Eldborg.

Svissneska tónskáldið Ludwig Wicki var áður prófessor við Tónlistarháskólann í Luzern en frá því að hann stjórnaði frumflutningi á Hringadróttinssinfóníunni árið 2008 hefur hann nær eingöngu ferðast um heiminn og stýrt þessu stórvirki m.a. í London, New York og víðar.

 

Hringadróttinssinfónían

  • Dagsetning

    • 16. feb. 2012, 20:00
    • 17. feb. 2012, 20:00
  • Salur

    Eldborg

  • Verð

    6500 kr. / 2000 kr.


Viðburðaleit


Viðburðir

febrúar 2012

(sleppa dagatali)
S M Þ M F F L
      01 02 03 04
05 06 07 08 09 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29      

Opnunartími miðasölu

Virkir dagar:

10:00 – 18:00 og lengur á tónleikakvöldum

Helgar:

12:00 – 18:00 og lengur á tónleikakvöldum
 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica