Lífið í húsinu
  • undiraldan poster

27. okt. 2011

Undiraldan// Undercurrent

Tónleikaröð Hörpu í samstarfi við 12 Tóna

Harpa   kynnir  nýja tónleikaröð sem nefnist Undiraldan í samstarfi við  12 Tóna. Tónleikarnir verða í Kaldalóni tvisvar í mánuði. Fyrstu tónleikarnir í röðinni verða nú á föstudaginn kl. 17.30 en fyrsta hljómsveitartvennan til að stíga á stokk eru  Sykur og Just Another Snake Cult . Allir eru velkomnir og aðgangur ókeypis.

 

Tónleikaröðin er sett fram í því skyni að kynna grasrótina í íslenskri tónlistarmenningu og veita ungum og upprennandi hljómsveitum/listamönnum tækifæri til að spila í Hörpu og koma tónlist sinni á framfæri og leyfa almenningi að fylgjast með þeirri grósku sem á sér stað í íslensku tónlistarlífi.

 

Í boði verður mjög fjölbreytt tónlist frá  íslenskum  tónlistarmönnum, bæði frá splunkunýjum böndum og þeim reyndari og þekktari.

 

Tónleikarnir nú á föstudaginn eru kjörið tækifæri til að rölta við í Hörpu eftir vinnu eða skóla og hlusta á góða tónlist – ókeypis !

 

Nánari upplýsingar veita Anna Margrét Björnsson ( anna@harpa.is) og Lárus Jóhannesson (larus@12tonar.is)

 

Undiralda // Undercurrent  no. 1 :  Um hljómsveitirnar

 

Just Another Snake Cult er níu manna hljómsveit sem nýlega var lýst  á Rjómanum sem "hrópandi hippum að spila sörfað skrýtipopp" og á selected-songs.com sem “wonderful and über-catchy lo-fi psychedelic indie-pop.”  Hljómsveitinn var stofnuð í fyrra af Þóri Bogasyni sem ólst upp í Kaliforníu og sem tók upp fyrstu breiðskífu sveitarinnar, The Dyonisian Season þegar hann flutti aftur heim. Platan var gefinn út hjá Braki hljómplötum fyrir rúmlega ári síðan. Skömmu síðar var hljómsveitin tilnefnd "bjartasta vonin" á Íslensku tónlistarverðlaununum. Just Another Snake Cult eru nú að semja lög fyrir næstu plötu.

 

SYKUR var stofnuð árið 2008 og hefur komið fram með ýmsum söngvurum , má þar nefna; BlazRoca, Rakel Mjöll Leifsdóttur (Útidúr) og Katrínu Mogensen (Mammút).

Nýverið gekk söngkonan Agnes Björt Andradóttir  og hefur vakið mikla lukku og athygli með sveitinni, nú síðast á nýliðinni Iceland Airwaves hátíð þar sem sveitin fékk mjög góða dóma í erlendum fjölmiðlum. SYKUR fær þó gesti til liðs við sig á splunkunýrri plötu, Mesópótamía sem kom út í dag, 26.október.  Í tveimur lögum en Árni Vilhjálmsson úr FM Belfast syngur fyrstu smáskífu plötunnar, Shed Those Tears og Kormákur Örn Axelsson syngur lagið 7am.




Lífið í húsinu


Leita á vefnum




 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica