Verkefnið
Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík, er hluti af umfangsmiklu þróunarverkefni á Austurhafnarsvæðinu. Eins og nafnið gefur til kynna er heildarmarkmið með verkinu að stækka og endurlífga austurhöfn Reykjavíkur með nýju miðbæjartorgi, verslunargötu, hóteli og blönduðum atvinnurekstri. Ætlunin er að glæða svæðið lífi og tengja betur miðbæinn og höfnina.
Byggingin stendur utan við byggingarkjarna borgarinnar og verður mikilvægt kennileiti í borginni, sjónrænt heillandi með öflugum og margbreytilegum svip. Einangrun staðarins gerir það að verkum að breytingar á loftslagi og ljósi birtast í glerhjúpi Hörpu, oft í andstæðu við þröngar og dimmar götur annars staðar í borginni.


