Staðreyndir um glerhjúpinn
- Hannaður af Olafi Eliassyni
- Kristalsform úr gleri og stáli.
- Form hjúpsins byggist á íslenska stuðlaberginu.
- Framkvæmdar voru nákvæmar rannsóknir á því hvernig sólarljósið hegðar sér í miðborginni.
- Hönnuð hefur verið sérstök lýsing í suðurveggnum sem byggist á LED- tækninni (light-emitting diode)
- Aldrei áður mun hafa verið notað jafn mikið af LED í byggingu í heiminum.
- Í hverjum glersteini suðurhliðarinnar mun verða ljós sem gerir það að verkum að í myrkri verður byggingin mjög lífleg.
- Hægt er að stjórna lit og styrkleika lýsingar í hverjum kubb.
- Lýsingin í glerhjúpnum vegur upp á móti samspili milli glerhjúpsins og breytilegrar náttúrulegrar birtu.
- Við lokastig hönnunar var lögð áhersla á endurspeglun,gagnsæi, lit og lýsingu.
- Við hönnun hjúpsins var unnið með rafljós, sólarljós og tekið mið af íslenskum árstíðum.
- Suðurhliðin verður saman sett úr 823 einingum af sexhyrndum glersteinum
- Aðrar hliðar verða úr sexhyrndum gluggum
- Heildarglerflötur verður 2500m2.
- Skorið gler (Cut quasi) 6100m2.
- Aðrir glerveggir verða 3400m2.
- Nánast hver kubbur er sérsmíðaður.


