Harpa
Harpa er 28.000 m2 að stærð og er staðsett á einstökum stað við gömlu höfnina í Reykjavík. Hönnunin er undir áhrifum frá einstakri og tilkomumikilli náttúru Íslands. Meginhugmyndin með byggingunni er að skapa kristallað form með fjölbreyttum litum sem sóttir eru í nærliggjandi náttúru og gefur þeim er þess nýtur síbreytileg tilfinningaleg áhrif. Hinn þekkti listamaður Ólafur Elíasson hannaði glerhjúpinn sem umlykur húsið í samvinnu við hönnuð hússins, Teiknistofu Hennings Larsens í Kaupmannahöfn. Jasper Parrott er alþjóðlegur ráðgjafi og Vladimar Ashkenazy listrænn raðgefandi.
Í Hörpu er gert ráð fyrir svölum til allra átta á mismunandi hæðum. Stórar þaksvalir eru á milli Tónlistarsalarins annars vegar og Æfinga og Ráðstefnusalar hins vegar þar sem almenningi gefst kostur á að njóta sérstaklega heillandi útsýnis yfir flóann og borgina. Skipulag byggingarinnar er mjög skýrt þar sem þrír salir liggja hlið við hlið, tónleikasalur, æfingasalur og ráðstefnusalur, sem einfaldar allt flæði innanhúss. Ennfremur verður 200 manna tónleikasalur á neðri hæð.
Við hönnun hússins var lögð áhersla á sveigjanleika þannig að húsið geti nýst allt til stærri viðburða eða að hægt verði að skilja ráðstefnurýmin algerlega frá öðrum rýmum þannig að mismunandi starfsemi fari fram á sama tíma í húsinu, án innbyrðis truflunar. Að auki verða fjölmargir minni salir sem munu nýtast til funda-og ráðstefnuhalds.


