• Harpa-inside-dusk

Upplýsingar fyrir gesti hússins

Vinsamlegast lesið yfir neðangreind atriði til þess að geta notið upplifunarinnar í Hörpu sem best.

Tónleikar okkar og viðburðir hefjast stundvíslega á þeim tíma sem er tilgreindur á aðgöngumiðanum.

Vinsamlegast gefið ykkur nægan tíma fyrir tónleikana/viðburðinn til þess að leggja bílnum, ná í miða, njóta veitinga og nota fatahengið.

Staðsetning

Harpa er í miðbæ Reykjavíkur við gömlu höfnina. Innkeyrsla er frá Sæbraut, góð gönguleið er yfir Tryggvagötuna að húsinu.  Hægt er að ganga meðfram sjónum og koma að Hörpu austanmegin.  Aðkoman að húsinu frá sjó er sérlega falleg.  Útsýni er úr húsinu í allar áttir. 

Bílastæði

Bílastæðahús með 545 stæðum er við Hörpu.  Bílastæðahúsið er upplýst og beint aðgengi inn í hús.  Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru næst inngöngum. Gjaldskylda er í bílastæðin og það þarf að greiða í mæli og setja miða í gluggann á bílum.

Fyrir framan Hörpu er einungis hægt að hleypa gestum út úr farartækjum.  Ekki er gert  ráð fyrir að bílar leggi þar.

Miðar

Vinsamlegast geymið aðgöngumiðann vel þar sem þið þurfið að sýna hann við innganginn á viðeigandi sal.

Stundvísi

Til þess að gestir njóti tónleikanna sem best er ekki hleypt inn á tónleika eftir að þeir hefjast, heldur verða þeir sem eru seinir fyrir að bíða þar til hlé verður í efnisskránni. Ef gestir þurfa að víkja úr sæti sínu utan hlés verður þeim vísað inn aftur á hentugum tíma á milli atriða.

Börn á tónleikum

Foreldrum er vinsamlega bent á að alltaf þarf að kaupa sæti fyrir börn í Eldborg, nema annað sé tekið fram. Börn verða að vera í fylgd með fullorðnum.

Fatahengi

Opið fatahengi er við miðasölu Hörpu sem er öllum opið.  Hægt er að geyma flíkur í lokuðu rými í miðasölu gegn gjaldi.

Myndatökur / upptökur í húsinu

Leyfi þarf til að taka upp myndir fyrir fjölmiðla eða fyrirtæki í Hörpu.

Allar upptökur á tónleikum hvort sem er hljóð eða mynd eru stranglega bannaðar í Hörpu.

Myndatökur á viðburðum/tónleikum eru ekki leyfðar, hvort sem um ræðir kvikmyndir eða ljósmyndir.

 

Klæðnaður á tónleikum

Engar sérstakar reglur gilda um klæðaburð á tónleikum.

Reykingar

Reykingar eru bannaðar í Hörpu nema í þar til gerðu útiskýli.

Notkun farsíma

Öll notkun  farsíma á tónleikum er bönnuð. Slökkt verður að vera á símunum meðan á tónleikum stendur.



 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica