Undir stórfenglegum glerhjúp Hörpu finnur þú Munnhörpuna, veitingahús og kaffibar, með mikilfenglegu útsýni bæði yfir miðbæinn en ekki síður sjálfa arkitektúrperluna Hörpu.
Staðurinn er suðupottur mannlífs og þegar mikið er um að vera í Hörpu er eftirvæntingin fyrir sýningu kvöldsins áþreifanleg. Margir velja einnig að koma til okkar í hléum viðburða eða eftir sýningar og tónleika til að framlengja ánægjulega kvöldstund.
Hingað eru þú og þínir ávallt velkomin til að njóta matargerðar, sem innblásin er af bæði dönskum og frönskum hefðum, hvort sem er í tenglum við viðburði í Hörpu eða ekki. Á sumrin þegar vel viðrar er vinsælt að setjast á glæsilegt og skjólsælt útisvæði okkar.
Nafnið á staðnum er augljóslega leikur að orðum. Þannig viljum við vera; léttleikandi og fremur óformleg , en að sama skapi gestrisin. Við þjónum gestum okkar með blik í auga.
-
Munnharpan
Opnunartímar 9:00-22:00
(eldhús 11:30-22:00)
-
Borðapantanir
528 5111
-
Munnharpan.is


