Hjarta Kolabrautarinnar er sjálft eldhúsið sem slær inni í miðjum salnum og þar tekur eldofninn á móti gestum. Salurinn tekur allt að 180 manns í sæti.
Hvort sem þú vilt njóta fordrykkjar fyrir málsverðinn eða fá þér drykk og kruðirí áður eða eftir að þú nýtur listarinnar í Hörpu þá er bar Kolabrautarinnar fullkominn viðkomustaður. Stolt þessa glæsilega bars sem er á mörgum stöllum eru hanastélin (kokkteilarnir) en mikið verður lagt upp úr fagmennsku á hanastélsbar Kolabrautarinnar.
Útsýnið frá Kolabrautinni er heillandi og skapar ógleymanlega kvöldstund ásamt glæsilegum a la carte matseðli og metnaðarfullum vínseðli frá gamla heiminum.
Opnunartími
mán - fös:
11.30-14:00
17:30-22:30
lau - sun:
17:30-22:30
Fólkið á bak við Kolabrautina
- YFIRMATREIÐSLUMAÐUR Þráinn Freyr Vigfússon
- YFIRÞJÓNN Jón Tryggvi Jónsson.
- YFIRBARÞJÓNN Christian Hägg.
- MATREIÐSLUMAÐUR Patrizia Volanti.
- FRAMREIÐSLUMEISTARI Jónína Þ. Kristjánsdóttir.
- EIGENDUR Leifur Kolbeinsson og Jóhannes Stefánsson.
- FRAMKVÆMDASTJÓRI Leifur Kolbeinsson.
-
Kolabrautin
-
Borðapantanir:
info@kolabrautin.is
s. 519 9700


