• Epal logo

Góð hönnun er gulls ígildi

EPAL í Hörpunni



  • epal-fyrirt

Í EPAL hafa vönduð hönnun, gæði og góð þjónusta verið í fyrirrúmi allt frá því fyrirtækið tók til starfa fyrir rúmum 35 árum. Í EPAL hefur fólk ævinlega komið í leit að húsgögnum, ljósum, gluggatjaldaefnum, gjafavörum og margvíslegum nytjahlutum fyrir heimilið. Allt er þetta glæsileg hönnun þekktra meistara á Norðurlöndum og víðar úr Evrópu, að ógleymdum verkum íslenskra hönnuða sem hlotið hafa veglegan sess í EPAL. 

Í EPAL hefur alltaf mátt sjá það nýjasta á sviði húsgagnahönnunar en ekki síður klassíska hönnun fyrri tíma. „Góð hönnun stenst svo sannarlega tímans tönn. Mikilvægt er að menn geri sér grein fyrir gildi klassískrar hönnunar og um leið hvað þeir eru með í höndunum, eigi þeir slíka muni,“ segir Eyjólfur Pálsson, eigandi EPAL. „Fallega hannaður hlutur vekur ekki aðeins ánægju heldur er hann líka góð fjárfesting.“

 

Markmið EPAL er og hefur verið frá upphafi:

  • Að kynna hönnun á Íslandi.
  • Að auka skilning og virðingu fyrir hönnun.
  • Að halda stöðu leiðandi fyrirtækis í þessari grein á Íslandi.
  • Að viðskiptavinir fái bestu þjónustuna í Epal.

Verslun Epal í Hörpunni verður sú þriðja, en fyrir er Epal í Skeifunni 6 og uppi á Keflavíkurflugvelli.


  • Epal

    Hörpu,
    Leifstöð,
    Skeifunni 6
  • Sími 515 7733
    Fax 568 7740
    harpa@epal.is
  • Fastir opnunartímar eru

    Mán - föst 10-18
    Lau 11 - 16
  • www.epal.is


 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica