• 12 tónar logo

12 Tónar

Fagmennska og þekking á tónlist



  • 12 Tónar

12 Tónar voru stofnaðir árið 1998 af  þeim Jóhannesi Ágústssyni og Lárus Jóhannessyni. Hugmyndin var að koma með ferska strauma inn í íslenskt tónlistarlíf.

Verslun 12 Tóna á Skólavörðustíg hefur fest sig í sessi meðal landsmanna og er þekkt fyrir spennandi vöruúrval, góða þjónustu og yfirgripsmikla þekkingu starfsfólksins. Hægt er að setjast niður og hlusta á allt sem í boði er og sérmalað kaffi hússins er rómað.

Þetta afslappaða andrúmsloft hefur einnig mælst vel fyrir hjá erlendum ferðamönnum og má segja að verslunin sé nokkurs konar kynningarmiðstöð fyrir íslenska tónlist. 

Fjöldi tónleika er haldinn ár hvert bæði innan dyra sem utan því að verslunin skartar stórum og björtum bakgarði. " Ferðamannaverslun ársins 2006" nafnbót sem að Höfuðborgarstofa og samtök Verslunar og Þjónustu veittu 12 Tónum á sínum tíma er staðfesting á mikilvægi verslunarinnar.

12 Tónar reka einnig blómlega útgáfu undir eigin merki og skartar útgáfusagan nöfnum eins og, Mugison, Ólöfu Arnalds, Eivöru Pálsdóttur, Ragnheiði Gröndal, KK og Ellen, Skúla Sverrissyni, Agli Ólafssyni, Jóhanni Jóhannssyni, Pétri Ben, Rökkurró, Apparat Organ Quartet, Singapore Sling, Ingibjörgu Þorbergs, Vikingi Heiðari Ólafssyni og svona mætti lengi telja.

Útgáfurnar hafa hlotið margar viðurkenningar, meðal annars. á þriðja tug Íslenskra Tónlistarverðlauna.

Útgáfum 12 Tóna er dreift um alla Evrópu en einnig hafa  nokkrir diskar komið út í Bandaríkjunum, Kína, Japan og Suður Kóreu.

12 Tónar eru mjög stoltir af því að opna nýja verlsun í hinni glæsilegu Hörpu og verða þannig enn frekar huti af blómlegu tónlistarlífi þjóðarinnar. Verslunin hefur  átt öflugt og gott samstarf við Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslensku Óperuna í gegnum tíðina.

Í nýju versluninn verður þekking, fagmennska og þjónustulund höfð að leiðarljósi. Lögð verður áhersla á mesta úrval landsins af íslenskri tónlist, mikið úrval af klassískri tónlist, sérstaklega mynddiskum, en einnig klassískt erlent rokk á góðu verði.

  • 12 Tónar ehf

    Skolavorðustíg 15
    101 Reykjavík
    Iceland
  • Sími: 528 5100
    Netfang: harpa (hjá) 12tonar . is
  • 12tonar.is

  • Fastur opnunartími:
    10.00 til 18.00


 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica