Veitingar og verslanir
Í Hörpu eru veitingastaðir, kaffihús, bar og tvær verslanir.
Harpa er góður viðkomustaður hvenær sem er dagsins en þar eru tveir veitingastaðir, Munnharpan á jarðhæð Hörpu og Kolabrautin á fjórðu hæð. Á jarðhæðinni er einnig að finna verslunina Epal þar sem íslensk og norræn hönnun er seld auk gjafavöru, og 12Tónar, sérfræðingar í tónlist. Hörpudiskurinn er svo veisluþjónusta Hörpu.
Smelltu á tenglana hér að neðan til að vita meira.

