Komdu í heimsókn!
Skoðunarferðir í Hörpu : Spennandi möguleikar í boði
Fræðandi og skemmtilegar leiðsöguferðir um húsið. Komdu og skoðaðu Hörpu - hæðirnar, glervegginn og salina.
Skoðunarferðir um Hörpu
Alla daga klukkan 11:00 og kl. 15.30
Verð: 1.500 krónur
Skoðunarferðin tekur 45 mínútur.
Bókanir: Hægt er að kaupa miða og mæta í skoðunarferð á auglýstum tímum við miðasölu Hörpu á jarðhæð eða bóka í gegnum tours@harpa.is eða í síma 528 5009.
Sérferðir fyrir hópa
Hægt er að bóka sérferðir fyrir stærri hópa á tours@harpa.is eða í síma 528 5009. Afsláttur fyrir stóra hópa.
Sérstakar skoðunarferðir fyrir faghópa
Spennandi möguleikar í boði!
Skólaferðir
Boðið er upp á skemmtilegar og fræðandi skoðunarferðir um Hörpu fyrir börn. Leikskólabörn – aðgangur ókeypis. Harpa er nýtt heimkynni Maxímús Músíkús og músarholan hans á jarðhæð er skoðuð!

