• harpa

Aðgengi

Aðgengi fyrir hreyfihamlaða

Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er í öllu húsinu.  Í Eldborg, aðalsal Hörpu, eru tvö stæði fyrir hjólastóla sem eru gjaldfrjáls.  Einnig er hægt að taka út sæti fyrir hjólastóla víða um salinn fyrir gesti sem kaupa miða.  Við minnum gesti á að taka fram tímanlega við miðasölu ef þörf er á stæðum fyrir hjólastóla, einnig í gjaldfrjálsu stæðin.  Vinsamlega látið vita minnst tveimur sólarhringum fyrir viðburð.   

Sérstök bílastæði eru fyrir hreyfihamlaða við inngang inn í Hörpu frá bílastæðahúsi. Inni í byggingunni er greið leið fyrir alla með lyftu sem tengir allar hæðir. Allar hurðir miðast við umferð hreyfihamlaðra og sérstök salerni fyrir hreyfihamlaða eru í húsinu.

Salerni fyrir hreyfihamlaða eru víða um húsið.

Aðstoð við heyrnaskerta

Fólk sem notar heyrnartæki hefur verulegt gagn af tónmöskvakerfi eða sambærilegu kerfi sem er notað til að draga úr aukahljóðum og bæta hlustun. Í Hörpu er hægt að fá afnot af slíkum búnaði en hann virkar þannig að það eru sendar í loftinu sem gefa frá sér innrautt merki. Merkið sendist í móttakara, heyrnartól eða hljóðslaufu sem virkar með heyrnartækjum. Gestir sem óska eftir að fá afnot af búnaðinum eru beðnir um að láta vita í miðasölu þegar miðar eru keyptir. 

Aðstoð við blinda og sjóndapra

Gestir eru vinsamlega beðnir um að láta vita tímanlega í miðasölu ef þörf er á aðstoð.

Börn á tónleikum

Foreldrum er vinsamlega bent á að alltaf þarf að kaupa sæti fyrir börn í Eldborg, nema annað sé tekið fram. Börn þurfa alltaf að vera í fylgd með fullorðnum og á ábyrgð þeirra.

Fatahengi

Opið fatahengi er við miðasölu Hörpu sem er öllum opið.  Hægt er að geyma flíkur í lokuðu rými í miðasölu gegn gjaldi.

Staðsetning

Harpa er í miðbæ Reykjavíkur við gömlu höfnina. Innkeyrsla er frá Sæbraut, góð gönguleið er yfir Tryggvagötuna að húsinu.  Hægt er að ganga meðfram sjónum og koma að Hörpu austanmegin.  Aðkoman að húsinu frá sjó er sérlega falleg.  Útsýni er úr húsinu í allar áttir.  

Bílastæði

Bílastæðahús með 545 stæðum er við Hörpu og er vel upplýst og aðgengilegt beint inn í húsið.

Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru næst inngöngum.

Fyrir framan Hörpu er einungis hægt að hleypa gestum út úr farartækjum. Ekki er hægt að leggja þar.
Gjaldskylda er í húsinu frá kl. 7-24 alla daga.
Þegar komið er inn í bílahúsið þarf að greiða gjaldið í gjaldmælum sem eru 3 á hvorri hæð bílahússins. Ef fólk lendir í vandræðum þá er alltaf vaktmaður á stæðinu. Hann er staðsettur í vaktherbergi í efri kjallara (K1).
Hægt er að greiða með kreditkortum, mynt og í gegnum leggja.is (gjaldsvæði 0). Innan skamms verður einnig hægt að greiða með debetkortum í gjaldmælana. Einnig er hægt að kaupa miða í stæði fyrirfram þegar miðar eru sóttir í miðasölu.
Mikilvægt er að muna að setja miðann sem kemur úr gjaldmælinum í glugga bifreiðar áður en farið er inn í húsið. Bent er á að bannað er að leggja bifreiðum á torginu fyrir framan eða til hliðar við Hörpu. Bílar eru sektaðir þar. Ef lagt er við vörumóttöku, við aðkomu neyðarbíla eru bílar dregnir í burtu.

Gjaldskrá

  • Tímagjald/Rate per hour                          kr. 200
  • Hálfur dagur (4 tímar)/Four hours             kr. 650
  • Heill dagur (8 tímar)/Eight hours              kr. 1.200
  • Mánaðargjald (dagpassar kl. 8-18)           kr. 11.000
  • Vangreiðslugjald /Pentalty                      kr. 4.900
  • Vangreiðslugjald ef greitt innan 3 daga     kr. 2.900

Vangreiðslugjald er lagt á bifreið í gjaldskyldu bílastæði þegar sýnt þykir að ekki hafi verið greitt fyrir stöðu bifreiðar í stæðinu eða greitt hefur verið fyrir of stuttan tíma.

 

 

 


 

 

 

 

 



 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica