Skemmtilegar staðreyndir um bygginguna

Skemmtilegar staðreyndir um byggingu Tónlistar - og ráðstefnuhússins

  • Í Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu verða fjórir salir, sá stærsti með 1800 sætum.
  • Í Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu verða 18 minni fundarsalir.
  •  Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verður heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
  •  Tónlistar- og ráðstefnuhúsið opnar vorið 2011.
  •  Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verður  28.000 fermetrar að stærð.
  •  Ólafur Elíasson listamaður hannar glerhjúpinn sem umlykur húsið.
  •  Bygginarlóðin er alls 6 hektarar (60.000 fermetrar).
  •  Tónlistar- og ráðstefnuhúsið verður 43 metrar á hæð frá götu (Hallgrímskirkjuturn er 76 metrar).
  •  Botnplata hússins er um 8.000 fermetrar.
  • Í bygginguna alla fara um 30.000 rúmmetrar af steypu.
  • Utan um grunn Tónlistar- og ráðstefnuhússins eru alls 500 metra löng stálþil.
  • Um 2.500 tonn af burðarstáli fara í byggingu Tónlistar- og ráðstefnuhússins og 4.000 af bendistáli.
  • Úr grunni hússins var mokað í burtu á annað hundrað þúsund rúmmetrum af jarðvegi.
  •  Á meðan á framkvæmdum við grunn hússins stóð var dælt upp úr honum sex milljónum tonna af sjó.

 





flnavísl


langnaven


Þetta vefsvæði byggir á Eplica