• Foyer

Sýningarými

Aðalforrýmið og önnur sýningarrými

Frá aðalforrýminu, sem er á 1. hæð, er auðveldur aðgangur að allri starfsemi og þjónustu fyrir gesti hússins.  Forrýmið hýsir upplýsingaborð, verslanir, kaffihús, miðasölu og fundarsalina Rímu, Stemmu og Vísu. Flói á 1. hæð er samtals 1.500 m2 og nýtist vel sem sýningarsvæði sem og fyrir móttökur og veisluhöld. Hægt er að koma fyrir 1000 manns  í veisluuppsetningu í rýminu en talsvert fleirum í standandi móttöku.

Á 2. hæð eru fjögur sýningarrými. Það minnsta er 130 m2 og stærsta er 450 m2 og hefur hlotið nafnið Eyri. Samtals er sýningarsvæðið á 2. hæð 1,040 m2.  

 

 

Í anddyri hússins njóta kristallaga gluggar glerhjúpsins sín einstaklega vel þar sem glerhjúpurinn myndar eins konar kápu utan um bygginguna. Glerið endurvarpar ólíkri birtu eftir því hvernig ljósið fellur á og birtan í forrýminu verður þar að leiðandi síbreytileg og heillandi.

 


 

Language


Fréttabréf Hörpu

Hér getur þú skráð netfangið þitt til að fá sendar fréttir og tilkynningar frá Hörpu.

Ath. Nauðsynlegt er að fylla út þá reiti sem merktir eru með *.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica